Sjálfbærniskýrsla Strætó 2022
Samfélagið

Sam­fé­lag­ið

Strætó leggur ríka áherslu á hlutverk sitt í samfélaginu sem þjónustufyrirtæki á sviði almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Til þess að uppfylla hlutverkið eru gildi fyrirtækisins höfð að leiðarljósi. Gildin eru samvinna, áreiðanleiki og drifkraftur.

Samvinna: Samvinna einkennir allt okkar starf, bæði innan fyrirtækis og gagnvart viðskiptavinum, eigendum og samstarfsaðilum.

Áreiðanleiki: Við erum á réttum stað á réttum tíma, erum hagsýn og ábyrg í öllum okkar störfum.

Drifkraftur: Við erum frumkvæðismiðuð og höfum kjark og þor til að taka ákvarðanir og leysa mál hratt og vel.


Lofts­lags­mál

Framtíðarsýn Strætó er að verða mikilvægasti hlekkurinn í samgöngukeðju höfuðborgarsvæðisins. Með þá sýn er lögð áhersla á að Strætó verði fyrsti valkostur íbúa höfuðborgarsvæðisins í og úr vinnu eða skóla, verði dýnamýskt þekkingarfyrirtæki, búi yfir kolefnislausum vagnaflota og verði eftirsóknarverður vinnustaður.

Strætó fylgir stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum og stuðlar að bættum lífsgæðum almennings. Strætó leitast eftir að vera leiðandi í orkuskiptum í samgöngum með því að fjárfesta í umhverfisvænum vögnum.

Strætó er þátttakandi í margvíslegum verkefnum sem snúa að loftslagsmálum. Má þar til dæmis nefna Græna planið sem er sóknaráætlun Reykjavíkurborgar um sjálfbærni og skýra framtíðarsýn um kolefnishlutlaust borgarsamfélag. Þá hefur Strætó gert tengingu við loftgæðamælistöðvar á vegum Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar og Garðabæjar á gagnvirku korti á heimasíðu Strætó og í Klapp appinu. Með því að smella á mælistöðvar á kortinu er hægt að skoða loftgæði á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og fleiri stöðum.

Síðastliðin ár hefur Strætó hvatt til notkunar á vistvænum samgöngumátum á „gráum dögum“ eða þegar líkur eru á að loftgæði mælast yfir heilsuverndarmörkum.

Veðurskilyrðin á „gráum dögum“ eru því ákjósanleg til þess að skilja bílinn eftir heima og nota vistvænar samgöngur.


Heims­mark­mið­in

Strætó hefur innleitt heimsmarkmið 11, 12 og 13 í sínar stefnur. Heimsmarkmiðin eru sjálfbærar borgir og samfélög (11), ábyrg neysla og framleiðsla (12) og aðgerðir í loftlagsmálum (13). Stefnt er að tengingu við fleiri heimsmarkmið á komandi misserum.


Um­hverf­is­mál

Strætó leggur áherslu á að lágmarka neikvæð áhrif vagnaflotans á umhverfið og árlega eru sett fram markmið í málaflokknum. Nánar er hægt að lesa um stefnur Strætó á heimasíðunni, www.stræto.is

Vert er að benda á að tölur í umfjölluninni um umhverfismál eiga aðeins við um eigin akstur Strætó. Neðar í þessum kafla má þó finna upplýsingar um eigin akstur Strætó og akstur verktaka, þ.e. vegalengdir og olíunotkun.

Nokkrir áhersluþættir Strætó í umhverfis- og öryggismálum:

  • Að móta og skapa öryggismenningu sem nær til allra starfsmanna Strætó
  • Að innleiða notkun á vistvænum orkugjöfum eða orkutækni
  • Að aukinn verði hlutur úrgangs sem fer til endurvinnslu og endurnýtingar
  • Að taka tillit til umhverfissjónarmiða við innkaup á vörum og þjónustu
  • Að upplýsa almenning um ávinning almenningssamgangna og stuðla þannig að aukinni notkun þeirra
  • Fræðsla, þjálfun og endurmenntun starfsmanna taki mið af áherslum umhverfis- og öryggismála
  • Að sömu kröfur séu gerðar til allra verktaka og þjónustuaðila Strætó

Vagnaflotinn sem rekinn er af Strætó samanstendur af 67 vögnum, 15 rafmagnsvögnum, 5 metanvögnum og 47 dísel vögnum. Vagnafloti verktaka eru 76 dísel vagnar, þ.e. 52 vagnar eru reknir af Kynnisferðum og 24 af Hagvögnum.

Strætó nýtir sér umhverfisvöktunarkerfi Klappa en með því hefur fengist betri mynd á umhverfisupplýsingar, með því að safna gögnum með rafrænum gagnastraumum í gegnum kerfi Klappa.

Orkunotkun

Eldsneyti

Strætó leitast við að vera leiðandi í orkuskiptum í samgöngum með því að fjárfesta í umhverfisvænum vögnum s.s. rafmagns-, vetnis- og metan vögnum. Framtíðarsýn Strætó er að vera með kolefnislausan vagnaflota 2030.

Notkun á dísel hefur dregist saman undanfarin ár og notkun umhverfisvænna orkugjafa aukist, samhliða endurnýjun vagna með kaupum á umhverfisvænni vögnum.

Tegund eldsneytisEiningar2019202020212022

Dísel 

Lítrar

1.784.885

1.412.869

1.319.726

1.341.473

Dísel á miðstöð rafvagna

Lítrar

74.598

93.728

98.593

75.895

Dísel samtals

Lítrar

1.859.483

1.506.597

1.418.319

1.417.368

Metan

Nm³

26.053

89.027

113.495

176.664

Raforku- og vatnsnotkun

Tölur um orkunotkun hafa aðeins verið fyrir starfstöð Strætó að Hesthálsi 14,  en núna var tekið með rafmagnsnotkun á endastöðvum og annars staðar hjá Strætó og einnig uppfært fyrir 2021.  Raforkunotkun hefur aukist síðustu ár, en dróst þó saman árið 2022, sem skýrist á því að akstur rafmagnsvagna dróst saman.  Hleðslustöðvar fyrir strætisvagna eru á lóð Strætó að Hesthálsi og einnig er ein hleðslustöð við biðstöð Strætó í Spöng. Rafmagnsnotkun fyrir hleðslustöðvar starfsmanna er inni í rafmagnsnotkun fyrir aðalhús að Hesthálsi 14.

Orkunotkun StrætóEiningar2019202020212022
Þvottastöð

Rafmagn

kWh

139.320

125.120

103.990

113.132

Heitt vatn

13.528

15.791

12.380

8.879

Kalt vatn

7.612

7.111

7.862

8.637

Aðalhús

Rafmagn

kWh

602.010

617.085

694.380

735.828

Heitt vatn

14.160

16.339

18.281

20.326

Kalt vatn

1.654

3.315

4.803

3.632

Endastöðvar og annað

Rafmagn

kWh

-

-

49.206

40.193

Hleðslustöðvar vagna

Rafmagn

kWh

1.305.570

1.478.549

1.683.699

1.349.283

Samtals

Rafmagn

kWh

2.046.900

2.220.754

2.531.275

2.238.436

Heitt vatn

27.688

32.130

30.661

29.205

Kalt vatn

9.266

10.426

12.665

12.269

Í starfsemi Strætó er lögð áhersla á orkusparnað og að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Eitt af markmiðum Strætó er að auka notkun á vistvænum orkugjöfum. Hlutfall vistvæns aksturs hefur hækkað síðustu ár en lækkaði lítilega á síðasta ári. Á síðasta ári var hlutfall vistvæns aksturs 30% en var 34% og 29% árin þar áður.

Losun gróðurhúsalofttegunda hjá Strætó 2019 - 2022

  • Bein losun vegna eldsneytisnotkunar
  • Eknir km – Dísel
  • Eknir km – Metan
  • Eknir km – Rafmagn

Hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla starfsmanna

Settar voru upp tvær hleðslustöðvar árið 2019 og tveim bætt við 2020. Margir starfsmenn hafa keypt sér rafmagnsbíl og hafa þá getað nýtt sér að hlaða þá sér að kostnaðarlausu í vinnunni.

Hleðslustöðvar starfsmannaEiningar2019202020212022

Rafmagn

kWh

5.842

18.295

17.820

21.158

Akstursaðilar

Taflan sýnir heildarnotkun og heildarakstur vagna hjá Strætó og öðrum akstursaðilum sem aka á höfuðborgarsvæðinu á vegum Strætó. Á síðasta ári var 45% af heildarakstrinum hjá Strætó, á mynd má sjá hvernig akstur skiptist á milli akstursaðila.

Akstursaðilar 2022

  • Strætó bs.
  • Kynnisferðir
  • Hagvagnar

Hjá Strætó hefur hlutfall vistvæns aksturs verið að hækka síðustu ár, en af heildarakstri allra strætisvagna er hlutfall vistvæns aksturs 14% og lækkaði úr 16% frá árinu 2021.

AkstursaðilarEiningarHeildarnotkunFjöldi vagnaNotkun á vagnEknir kmNotkun á 100 km
Verktakar

Hagvagnar - Díselvagnar

Lítrar

651.000

24

27.125

1.451.000

44,9

Kynnisferðir - Díselvagnar

Lítrar

1.685.671

52

32.417

3.978.171

42,4

Samtals

76

5.429.171

Strætó bs.

Díselvagnar

Lítrar

1.341.473

47

28.542

3.148.518

42,6

Metanvagnar

Nm³

176.664

5

35.333

282.678

62,5

Rafvagnar

kWh

1.349.283

15

89.952

1.069.170

126,2

Dísel á miðstöð rafvagna

Lítrar

75.895

5.060

7,1

Samtals 

67

4.500.366

Euro staðlar vegna vagnaflotans

Vagnar hjá Strætó sem falla undir hæstu staðlatölu Euro staðalsins, eða Euro 6 voru á síðasta ári 47, 15 rafmagnsvagnar og 32 díselvagnar. Því hærri sem staðlatalan er því betri teljast mengunarvarnir vagnanna og vænni kostur fyrir umhverfið.

Euro staðlarStrætóHagvagnarKynnisferðirSamtals

E-BUS

15*

15

EURO 6

32

9

52

93

EURO 5

13

15

28

EURO 3

3

3

EURO 2

4

4

Samtals

67

24

52

143

* Inni í þessari tölu er einn leigu rafmagnsvagn

Losun gróðurhúsalofttegunda  

Bein losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) Umfang 1

Bein losun gróðurhúsalofttegunda hjá Strætó er vegna eldsneytisnotkunar. Við útreikninga á beinni losun er haldið utan um olíu- og metan notkun og notaðir voru losunarstuðlar frá Klöppum 2,563 kgCO2í/L fyrir dísel 5% VLO,  2,30956 kgCO2í/L fyrir dísel 15% VLO  og 0,00511 kgCO2í/kg fyrir metan. Dísel vagnar í eigu Strætó hafa verið knúnir 15% vetnismeðhöndlaðri lífrænni olíu (VLO), sem er hærra íblöndunarhlutfall en almennt og þannig dregið frekar úr mengun akstursflotans. Árið 2022 var farið í hefðbundna 5% VLO íblöndunarhlutfall.

Árið 2022 var losun 3.633,4 tCO2í vegna eldsneytis fyrir strætisvagna. Bein losun hefur farið minnkandi síðustu ár samhliða kaupum á umhverfisvænum vögnum en jókst á síðasta ári, en aukningin er vegna minni íblöndunarhlutfalls á dísel.

Umfang 1 - Samsetning losunarEiningar2019202020212022

Heildarlosun

tCO₂í

4.294,7

3.479,9

3.276,1

3.633,4

Eldsneytisnotkun

tCO₂í

4.294,7

3.479,9

3.276,1

3.633,4

Óbein orkulosun gróðurhúsalofttegunda (GHL) Umfang 2

Losun var reiknuð út frá stuðlum fyrir hvert ár fyrir sig frá Umhverfisstofnun. Fyrir heitt vatn var notað losunarstuðull núll frá Umhverfisstofnun.

Umfang 2 - Samsetning losunarEiningar2019202020212022

Heildarlosun

tCO₂í

20,1

23,3

26,1

23,1

Rafmagn - Hestháls 14

tCO₂í

7,3

7,8

8,2

8,7

Rafmagn - Endastöðvar og annað

tCO₂í

-

-

0,5

0,4

Rafmagn - Hleðslustöðvar vagna

tCO₂í

12,8

15,5

17,3

13,9

Heitt vatn

tCO₂í

0

0

0

0

Önnur óbein losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) Umfang 3

Til óbeinnar losunar starfseminnar í umfangi 3 er meðhöndlun sorps, akstur verktaka og flug starfsfólks.

Við útreikninga á losun gróðurhúsalofttegunda frá urðun úrgangs var notast við losunarstuðla frá Umhverfisstofnun. Hjá Umhverfisstofnun er gefið upp að þeir úrgangsstraumar sem fara í endurvinnslu valdi engri losun á Íslandi og hafa því losunarstuðulinn 0.

Óbein losun eldsneytisnotkunar verktaka vegna aksturs er reiknuð út frá olíunotkun og losunarstuðli fyrir dísel 5% VLO.

Starfsfólk Strætó flaug 15 ferðir til og frá Íslandi á árinu 2022. Samkvæmt reiknivél Alþjóða flugmálastofnunarinnar (ICAO) þá er losun þessara ferða samtals 6,3 tonn af CO2.

Umfang 3 - Samsetning losunarEiningar2019202020212022

Heildarlosun

tCO₂í

5.268,7

5.003,1

5.535,4

6.015,6

Förgun og meðhöndlun á úrgangi - Hestháls 14

tCO₂í

16,7

16,4

15,2

14,2

Förgun og meðhöndlun á úrgangi - Endastöðvar og annað

tCO₂í

-

-

6,1

6,2

Eldsneytisnotkun verktaka

tCO₂í

5.252,0

4.986,7

5.514,1

5.988,9

Flug starfsfólks

tCO₂í

-

-

-

6,3

Bein losun gróðurhúsalofttegunda hefur minnkað á síðustu árum.  Sé bein losun sett í samband við fjölda vagna hjá Strætó þá hefur styrkur losunar gróðurhúsalofttegunda farið minnkandi en aukist aftur á síðasta ár. Skýrist hækkunin meðal annars á að losun vegna dísels hækkaði með breytingu á íblöndun, einnig fækkaði vögnum um 10 milli ára og nýting rafmagnsvagna var lakari.

GróðurhúsalofttegundirEiningar2019202020212022

Umfang 1

tCO₂í

4.294,7

3.479,9

3.276,1

3.633,4

Umfang 2

tCO₂í

20,1

23,3

26,1

23,1

Umfang 3

tCO₂í

5.268,7

5.003,1

5.535,4

6.015,6

Losun gróðurhúsalofttegunda (Umfang 1, 2 og 3)

tCO₂í

9.583,5

8.506,3

8.837,6

9.672,1

Bein losun gróðurhúsalofttegunda á vagn

tCO₂í/vagn

50,5

40,9

42,5

54,2

Meðhöndlun úrgangs

Hjá Strætó bs. er leitast við að lágmarka úrgang eins og kostur er. Síðustu ár hefur magn úrgangs verið að minnka. Hreinsun og flutningur ehf. sér um megnið af sorpþjónustu hjá Strætó á Hesthálsi.  Spilliefni, rafgeymar, perur og raftæki fara til Terra. Blandaður úrgangur frá Hesthálsi hefur verið að minnka og núna var tekinn með úrgangur frá endastöðvum.

ÚrgangurEiningar2019202020212022

Blandaður úrgangur - Hestháls 14

kg

18.970

18.630

17.255

16.150

Blandaður úrgangur - Endastöðvar og annað

kg

-

-

6.884

7.054

Til urðunar samtals

kg

18.970

18.630

24.139

23.204

Úrgangur til endurvinnslu

Garðaúrgangur

kg

0

0

0

0

Málmar/brotajárn

kg

20.080

14.810

20.025

14.570

Timbur

kg

5.500

4.270

2.150

4.340

Annað (plast, pappi, pappír, dagblöð/tímarit)

kg

7.920

6.100

4.830

5.511

Hjólbarðar

kg

11.100

12.400

8.650

10.510

Til endurvinnslu samtals

kg

44.610

37.580

35.655

34.931

Spilliefni

Olía og olíumengað

kg

10.206

13.544

9.619

5.370

Rafgeymar og rafhlöður

kg

3.609

4.488

2.576

2.203

Prenthylki

kg

35

6

11

29

Raftæki

kg

1.460

621

757

1.111

Perur/flúrperur

kg

38

3

14

7

Málning

kg

0

0

6

2

Spilliefni samtals

kg

15.348

18.662

12.983

8.722

Efnanotkun

Strætó leitast við að minnka efnanotkun. Minna var notað af flestum efnum en meira var þó notað af smurolíu.

Strætó hefur endurnýtt hjólbarða með því að láta sóla þá, en með því hefur verið hægt að kaupa færri nýja hjólbarða. Það minnkar einnig úrgang að láta sóla eldri hjólbarða frekar en að henda. Á síðasta ári voru 242 hjólbarðar sólaðir og 120 keyptir nýir. Með því að sóla 242 hjólbarða í stað þess að kaupa nýja er áætlað að losun CO2 sé 43,8 tonnum minni, þar sem minna þarf af olíu og hráefni við framleiðslu dekkjanna og einnig vegna minni orkuþarfar.

EfnanotkunEiningar2019á vagn2020á vagn2021á vagn2022á vagn
Akstur

Vagnafjöldi

85

85

77

67

Eknir km:

km

5.349.267

4.940.221

4.794.623

4.500.366

Smurolía

Verkstæði

Lítrar

5.668

66,7

4.584

53,9

3.210

41,7

5.298

79,1

Þvottastöð ábætt

Lítrar

1.682

19,8

1.629

19,2

2.015

26,2

2.257

33,7

Samtals

Lítrar

7.350

86,5

6.213

73,1

5.225

67,9

7.555

112,8

Lítrar per 100 km.

Lítrar/100 km

0,14

0,13

0,11

0,17

Önnur efni

Tjöruhreinsir

Lítrar

8.000

94,1

6.000

70,6

6.620

86,0

6.600

98,5

Þvottaefni

Lítrar

4.460

52,5

3.600

42,4

540

7,0

400

6,0

Frostlögur

Lítrar

5.692

67,0

6.110

71,9

9.480

123,1

5.200

77,6

Hjólbarðar

Sólaðir

stk.

298

237

275

242

Nýir

stk.

110

200

200

120

Samtals

stk.

408

437

475

362

Fjöldi per 100 km.

stk/100 km

0,008

0,009

0,010

0,008

Nýtt greiðslukerfi betra fyrir umhverfið                                        

Með tilkomu nýs greiðslukerfis hefur greiðslum fargjalda með „einnota“ farmiðlum fækkað töluvert. Með einnota farmiðlum er átt við bæði farmiða og tímabilskort úr pappír og plasti, þar sem farmiðillinn sjálfur (plastið eða pappírinn) er ónothæfur þegar fargjald er útrunnið.

Umhverfislegur ábati af því að fækka einnota farmiðlum verður að teljast töluverður. Í fyrra greiðslukerfi Strætó árið 2019 voru um 47% fargjalda greidd með farmiðlum sem teljast einnota. Það voru tæp 73 kg af plasti og 108 kg af pappír.

Með tilkomu Klapp greiðslukerfisins sem tekið var í notkun í lok árs 2021 minnkaði prentun fargjalda á pappír um 73% eða niður fyrir 30 kg á fyrsta heila árinu, 2022. Þá eru plastkortin ekki lengur einnota þar sem um áfyllingakort er að ræða þar sem viðskiptavinurinn getur fyllt inn á kortið að vild þegar fargjaldið rennur út.

Plast og pappírsnotkun

  • Plast
  • Pappír

Hags­muna­að­il­ar

Strætó gerir ekki sérstaka hagsmunaaðilagreiningu á forsendum samfélagsábyrgðar en nýtir þess í stað ýmsar aðferðir eins og opna fundi, ábendingakerfi og viðhorfskannanir meðal starfsmanna og almennings.

Lögð er áhersla á þá þætti sem teljast mikilvægir fyrir Strætó og hagaðila í efnistökum skýrslunnar. Viðfangsefni tengjast einnig heimsmarkmiðunum sem Strætó leggur áherslu á og er því betur lýst í kafla um heimsmarkmið.

Viðskiptavinir

Strætó er þjónustufyrirtæki sem leggur megináherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina.  Í þjónustustefnu Strætó er lögð áhersla á að auka þjónustu og gæði til viðskiptavina og efla almenningssamgöngur þannig að Strætó verði fyrsti valkostur íbúa höfuðborgarsvæðisins í og úr vinnu eða skóla. Það gerir starfsfólk af ánægju með gildi Strætó, áreiðanleika, samvinnu og drifkraft að leiðarljósi.

Dæmi um samskipti og samvinnu Strætó við viðskiptavini:

  • Bein samskipti við viðskiptavini eru um borð í strætisvögnum, í þjónustuveri, á samfélagsmiðlum, í gegnum tölvupósta og fleiri boðleiðir.
  • Strætó tekur við formlegum ábendingum frá viðskiptavinum í gegnum vef Strætó. Allar ábendingar eru skráðar og sendar í úrvinnslu.
  • Könnun á notkun og viðhorfi almennings til Strætó er framkvæmd tvisvar á ári.
  • Reglulega heldur Strætó opna fundi eða samráðsviðburði.

Eigendur og stjórnvöld

Strætó er í nánu samstarfi við eigendur (sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu) og íslensk stjórnvöld.

Dæmi um samskipti og samvinnu Strætó við eigendur og stjórnvöld:

  • Strætó framfylgir stefnu stjórnar.
  • Strætó sinnir markvissri vinnu og stefnumótun í umhverfismálum.
  • Árs- og samfélagsskýrslur eru birtar á vef Strætó.
  • Álit frá Strætó í samráðsgátt stjórnvalda.
  • Innleiðing laga- og reglugerðakrafna.
  • Samkomulag við Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins um lán á strætisvögnum í ýmsum aðgerðum.

Starfsfólk

Strætó leggur áherslu á að skapa starfsfólki jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi, efla starfsfólk og stuðla að virkni og ánægju þess. Allt starfsfólk ber sameiginlega ábyrgð á að skapa jákvæða og hvetjandi vinnustaðamenningu þar sem gagnkvæm virðing og starfsánægja er í fyrirrúmi.

Dæmi um samskipti og samvinnu Strætó við starfsfólk:

  • Vinnustaðagreiningar eru framkvæmdar á hverju ári.
  • Meðmælaskor starfsmanna eru mæld árlega.
  • Strætó hefur mótað viðverustefnu sem hefur það að markmiði að draga úr fjarvistum vegna veikinda, styðja og hlúa að starfsfólki vegna fjarveru frá vinnu til lengri eða skemmri tíma.
  • Strætó stefnir að því að skapa slysalausan vinnustað þar sem enginn starfsmaður, verktaki eða almenningur bíður heilsu- eða líkamstjón í starfsumhverfi Strætó.
  • Strætó leggur áherslu á fjölbreytileika, að komið sé eins fram við alla og að öllum séu veitt jöfn tækifæri.

Birgjar

Strætó leggur áherslu á góð tengsl og samvinnu við birgja og þjónustuaðila. Markmið Strætó er að tryggja að við innkaup sé gætt jafnræðis, gagnsæis og hagkvæmni. Flestir af stærstu og mikilvægustu birgjum Strætó starfa á Íslandi og eru 10 stærstu birgjarnir allir innlendir og af 50 stærstu birgjunum eru einungis 7 erlendir birgjar.

Samfélagið

Strætó gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi, sérstaklega er varðar almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og umhverfismál.

Dæmi um samskipti og samvinnu Strætó við samfélagið:

  • Strætó styður við allar vistvænar samgöngur.
  • Strætó fylgir stefnu stjórnvalda í loftlagsmálum og stuðlar að
    bættum lífsgæðum almennings. Stefnt er að kolefnislausum vagnaflota fyrir árið 2030.
  • Strætó hefur látið að sér kveða í loftgæðamálum.
  • Strætó er hagkvæmur valkostur fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins.

Samtök

Strætó er aðili að fjölmörgum samtökum, bæði innlendum og erlendum. Þau helstu eru:

 

UITP – International Association of Public Transport

UITP (Union Internationale des Transports Publics) eru alþjóðleg samtök fyrirtækja og hagaðila í almenningssamgöngum. Samtökin voru stofnuð árið 1885 og eru með meira en 1900 meðlimi í yfir 100 löndum.

 

ITS Ísland – Intelligent Transportation System

ITS Ísland var stofnað árið 2019 og var Strætó einn af stofnendum félagsins. Intelligent Transportation System (ITS) er bæði safnhugtak fyrri upplýsingatæknihlið samgangna- og flutningsgeira og formlegur félagsskapur sérfræðinga í tengdum atvinnugreinum um allan heim. Markmið félagsins er að skapa vettvang til að tryggja faglega hagsmuni opinberra og einkarekinna fyrirtækja sem og fræði- og vísindamanna á sviði upplýsingatæknivæddra flutningskerfa í samvinnu við opinbera aðila.

BEST – Benchmarking European Service of Public Transport

BEST eru evrópsk samtök almenningssamgöngufyrirtækja sem hafa það að meginmarkmiði að auka notkun almenningssamgangna í þéttbýli og auka um leið þekkingu á þörfum, kröfum og væntingum viðskiptavina.

 

Stjórnvísi

Stjórnvísi er stærsta stjórnunarfélag á Íslandi, í eigu félagsmanna og er félagið ekki rekið í hagnaðarskyni. Stjórnvísi eflir gæði stjórnunar á Íslandi með því að skapa hvetjandi vettvang fyrir gagnkvæma þekkingarmiðlun, umræður og tengslamyndun.

 

Dokkan

Dokkan er þekkingar- og tengslanet stjórnenda og lykilstarfsmanna sem virkar þannig að fyrirtæki og stofnanir – vinnustaðir – gerast áskrifendur að netinu.  Innifalið í þeirri áskrift er aðgangur að þekkingar- og tengslafundum Dokkunnar. Dokkan býður félögum sérstök kjör þegar kemur að námskeiðum, vinnustofum og ráðstefnum.

 

Mannauður – Félag mannauðsfólks á Íslandi

Mannauður eru fagsamtök mannauðsfólks á Íslandi. Hlutverk Mannauðs er að efla fagmennsku, vera framsækið og leiðandi á sviði mannauðsstjórnunar í þágu atvinnulífsins.

 

FKA – Félag kvenna í atvinnulífinu

FKA eru félagasamtök fyrir konur sem eru stjórnendur og leiðtogar í íslensku atvinnulífi. Félagið stendur fyrir viðburðum, fræðslu, veitir ráðgjöf og knýr fram breytingar á lögum og venjum til að gæta jafnvægis og fjölbreytileika innan atvinnulífsins.

 

Félag um innri endurskoðun

Félag um innri endurskoðun er samstarfsvettvangur þeirra sem starfa við innri endurskoðun í fyrirtækjum og stofnunum. Markmið félagsins er að efla innbyrðis tengsl og kynningu þeirra sem starfa við fagið, vera vettvangur til að styrkja fagleg vinnubrögð, styrkja þróun innri endurskoðunar og faglega umræðu, jafnframt því að vera leiðandi rödd stéttarinnar út á við.

 

ÍMARK – Samtök íslensks markaðsfólks

ÍMARK, samtök íslensks markaðsfólks eru samtök einstaklinga sem hafa áhuga á og/eða starfa við markaðsmál. Tilgangur samtakanna er m.a. að auka veg og virðingu markaðsmála hérlendis og stuðla að auknum skilningi á mikilvægi þeirra.


Strætó í fjöl­miðl­um

Markmið Strætó er að tryggja faglega og trausta upplýsingagjöf til almennings, viðskiptavina, fjölmiðla, starfsmanna og annarra hagsmunaaðila. Lögð er áhersla á að svara fyrirspurnum fjölmiðla fljótt og örugglega í samræmi við upplýsingalög.

Árið 2022 var minnst á eða fjallað um Strætó í 855 skipti og er það töluvert meira en í fyrra. Flestar umfjallanir um Strætó voru á netmiðlum. Eftirfarandi tölur eru fengnar úr Fjölmiðlavakt Creditinfo.

Fjöldi umfjallana Skipting eftir mánuðum

Mest var fjallað um Strætó í byrjun árs 2022 og í september og október. Strætó varð fyrir netárás í lok árs 2021 og gjaldskrárhækkun var tilkynnt í september 2022.

Eins og yfir síðustu ár, þá var Strætó minnst í umræðunni yfir sumartímann.

Fjöldi umfjallana 2022

Vaktað efni – þróun á tíðni umfjöllunnar eftir mánuðum

Innihaldsgreining frétta

Í innihaldsgreiningum Creditinfo þá eru fréttum skipt niður í eftirfarandi flokka:

  • Neikvæðar
  • Hlutlausar
  • Jákvæðar
  • Jafnaðar

„Jafnaðar fréttir“ eru í raun neikvæðar fréttir sem Strætó hefur fengið að koma fram og útskýra sína hlið.

Flestar fréttir um Strætó eru hlutlausar. Jákvæðar, neikvæðar og jafnaðar fréttir eru svipað margar. Flestar neikvæðar fréttir birtust í september en þá var gjaldskrárhækkun tilkynnt hjá Strætó. Heldur fleiri neikvæðar fréttir birtast í dagblöðum heldur en í netmiðlum.

Innihaldsgreining 2022

  • Neikvætt
  • Hlutlaust
  • Jákvætt
  • Jafnað

Innihaldsgreining 2022 - þróun eftir mánuðum

  • Neikvætt
  • Hlutlaust
  • Jákvætt
  • Jafnað

Tengingar við samfélagsmiðla

Tengingar netfrétta við samfélagsmiðla sýnir hversu oft er líkað við fréttir á netmiðlum, skrifuð athugasemd við þær eða þeim deilt á samskiptasíðunni Facebook. Hér er ekki átt við Facebook færslur sem notendur skrifa sjálfir um Strætó eða sem Strætó deilir á sinni síðu.

Heildartengingar við Facebook voru 84.219 talsins á árinu 2022 og voru flestar tengingar eða 7.628 við jákvæða frétt, þar sem vagnstjóri hafði skutlað dreng heim til sín eftir að hann tók vitlausan vagn að kvöldi til og var móðir drengsins afar þakklát.

Fréttaskor

Fréttaskorið er sjálfvirk greining á mikilvægi frétta. Tilgangur skorsins er að gefa raunsæja mynd af því hversu mikið vægi hver tiltekin frétt hefur.

Fréttaskorið sýnir meðal annars að hve miklu leyti fréttin fjallaði sannarlega um viðkomandi efni og greinir hversu mikla athygli fréttin hlaut. Fréttaskorið er metið á bilinu 1 – 5 þar sem 1 er mjög lítið vægi og 5 er mjög mikið vægi.

Fréttaskor 2022

  • Mjög lítið vægi
  • Lítið vægi
  • Nokkurt vægi
  • Mikið vægi
  • Mjög mikið vægi